85. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 24. ágúst 2016 kl. 09:00


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 09:14
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:00

Páll Valur Björnsson, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon voru stödd erlendis vegna starfa fyrir þingið.
Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 10:50.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 09:00
Fundargerðir 83. og 84. funda voru samþykktar.

2) Staða þingmannamála í nefndinni Kl. 09:05
Nefndin ræddi stöðu þingmannamála í nefndinni.

3) 677. mál - lyfjalög Kl. 09:35
Einar Magnússon og Jón Fannar Kolbeinsson frá velferðarráðuneytinu mættu á fund nefndarinnar, gerðu grein fyrir sjónarmiðum ráðuneytisins í tengslum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 678. mál - lyfjastefna til ársins 2020 Kl. 09:35
Einar Magnússon og Jón Fannar Kolbeinsson frá velferðarráðuneytinu mættu á fund nefndarinnar, gerðu grein fyrir sjónarmiðum ráðuneytisins í tengslum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 11:15
Fleira var ekki gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 11:15